---
title: Lausnir fyrir fagfólk | Kara Connect
description: Taktu þátt í samfélagi sérfræðinga og gerðu þeim sem eru hjálpar þurfi kleift að finna þig. Hagræddu rekstrinum og blómstraðu með Köru Connect.
image: https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Kara%20Connect%20Logo%20Featured%20Image.png
---

# Auðveldaðu fólki í leit að hjálp að finna þig

Bókanir, fundir, glósur og greiðslur eru leikur einn með Köru Connect. Með Köru geturðu náð til stærri hóps í leit að aukinni hamingju, heilsu og lífsfyllingu á öruggan og einfaldan hátt.

[ Skráðu þig sem sérfræðing hjá Köru ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

![Union](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Karaconnect%20Assets/Images/Union.png)

Örugg SSL-skírteini

![lock](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Karaconnect%20Assets/Images/lock.png)

Uppfyllir skilmála GDPR

![for-professionals.v5_-Karaconnect](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/for-professionals.v5_-Karaconnect.png)

## Heildræn nálgun á velferð

![Group 282](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Group%20282.png)

#### Sálræn velferð

- Kvíði
- Þunglyndi
- Áföll
- Núvitund
- Fagleg

![Professional](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Exclude.png)

#### Atvinnumiðuð velferð

- Kulnun
- Markþjálfun
- Vinnustaðaráðgjöf
- Þroski á starfsferli

![Social](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/users.png)

#### Félagsleg velferð

- Foreldraráðgjöf
- Samskiptaráðgjöf
- Hjónabandsráðgjöf
- Sambandsráðgjöf

![Physical](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/relationship.png)

#### Líkamleg velferð

- Næringarþjálfun
- Svefnmeðferð
- Sjúkraþjálfun
- Vímuefnanotkun

![Financial](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/dollar-circle.png)

#### Fjárhagsleg velferð

- Skuldaráðgjöf
- Fjármálaráðgjöf
- Fjárfestingaráðgjöf
- Eftirlaunaráðgjöf

## Hvers vegna nota sérfræðingar Köru Connect?

Mér hefur þótt Kara vera einföld í notkun, og skjólstæðingum mínum hefur þótt það líka. Raunar hefur Kara slegið í gegn hjá þeim, því þeim finnst gott að hafa sveigjanleikann. Svo hefur mörgum þótt frábært að geta notað öruggt vefsvæði því þeim finnst betra að fá meðferð annarsstaðar en í nærumhverfi sínu.

![Untitled design (11)-1](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Untitled%20design%20(11)-1.png)

##### Clodagh McGrath

Counselling & Psychotherapy

 Írlandi

Kara Connect hefur gert mér kleift að minnka tímann sem fer í að halda utan um bókanir og reikningagerð, því það er allt á einum stað. Kara heldur líka utan um allar glósurnar mínar á öruggan og aðgengilegan hátt – svo það er lítið mál að grípa til þeirra í miðjum tíma. Ég get líka veitt skjólstæðingum mínum aðstoð óháð staðsetningu, bæði þeirra og minnar eigin. Það sem er þó mikilvægast að mínu mati er að Kara Connect hafi fengið viðurkenningu Landlæknisembættisins.

![Hjalti Jónsson](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Hjalti%20J%C3%B3nsson.jpg)

##### Hjalti Jónsson

Ph.D., sálfræðingur

Danmörku

Ég hef notað Köru Connect í um tvö ár núna til þess að hafa umsjón með fjarmeðferðarþjónustunni minni. Kara fylgir ströngum reglum Evrópusambandsins um gagna- og persónuvernd, GDPR, í ystu æsar. Svo er mjög þægilegt að Kara sé með innbyggt greiðslukerfi, sem einfaldar allt bókhaldið mitt til muna. Mér finnst samt mikilvægast hvernig Kara bætir aðgengi að hjálp fyrir skjólstæðinga mína.

![Heimir Snorrason](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Heimir%20Snorrason.jpg)

##### Heimir Snorrason

 sálfræðingur

Íslandi

### Vertu hluti af sérfróðu samfélagi

![Licensed](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

##### Fagmennska

Allir sérfræðingarnir okkar hafa hlotið viðurkenningar, þjálfun og starfsleyfin sem þarf til þess að bjóða upp á örugga og áhrifaríka aðhlynningu.

 Contact us

![Accessible](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

##### Aðgengileiki

Sérfræðingarnir okkar eiga það sameiginlegt að vilja bæta aðgengi skjólstæðinga sinna að þeirri hjálp sem þau þurfa, með fjarþjónustu þegar þörf krefur.

 Contact us

![Experienced](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

##### Reynsla

Allir sérfræðingarnir okkar búa yfir mikilli starfsreynslu og hafa sannað sig fyrir skjólstæðingum sínum með meðferð og ráðgjöf sem skilar árangri.

 Contact us

![Forward-thinking](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

##### Framsýni

Sérfræðingar Köru eru forvitnir og spenntir fyrir nýjungum og hafa puttann á púlsinum með tilliti til framþróunar á svínu sviði – og eru fljót að innleiða nýjungar til þess að bæta þjónustuna sína.

 Contact us

![Respectful](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

##### Virðing

Sérfræðingar Köru sjá til þess að skjólstæðingurinn upplifi virðingu og þægindi – fyrir og eftir hvern tíma og á meðan tímanum stendur.

 Contact us

![path-2](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)

![Group 273](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Group%20273.png)

![](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/arrow-down-circle.png)

## Straumlínulagaðu starfið þitt

- ![Simplified administration with our all-in-one platform](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Einföld umsjón með öllum víddum starfsins á einum stað
- ![GDPR compliant, 100% secure and private](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Uppfyllir skilmála GDPR, 100% öruggy og trúnaður tryggður
- ![Ensured payments for late cancellations and no-shows](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Þú færð alltaf greitt fyrir fjarvistir og seinar afbókanir

![Streamline](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Streamline.png)

![Effortless business growth](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/arrow-down-circle.png)

## Áreynslulaus vöxtur

- ![Expanded reach and increased visibility](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Breiðari kúnnahópur
- ![A more predictable revenue stream and workload](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Fyrirsjáanlegri velta og vinnuálag
- ![Greater flexibility and work-life balance](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/path-2.png)
  
  #### Aukinn sveigjanleiki og jafnvægi milli atvinnu og frístunda

![Frame 36464](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Frame%2036464.png)

## Auðveld og þægileg innskráning

- ![Join Kara Connect](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/login-1.png)
  
  #### Skráðu þig hjá Köru Connect
- ![Create your profile](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/identification.png)
  
  #### Settu upp aðgang
- ![Get new client bookings](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/inbox-in.png)
  
  #### Bókaðu nýja skjólstæðinga

[ Skráðu þig sem sérfræðing hjá Köru ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

![Frame 24](https://4800530.hs-sites-eu1.com/hubfs/Frame%2024.png)

[ Skráðu þig sem sérfræðing hjá Köru ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

Kara Pro

**€39**

á mánuði fyrir hvern sérfræðing

Fyrir stakan sérfræðing

[ Skráðu þig hér ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

Ótakmarkaðir fjarfundir Innbyggt dagatal og tilkynningakerfi Öruggar vinnuglósur og skrásetning Öruggar greiðslur með KaraPay Sérfræðingsprófíll Tæknileg aðstoð með netspjalli Uppfyllir skilmála GDPR

Köruteymi

** €39**

á mánuði fyrir hvern sérfræðing

Fyrir smærri teymi

[ Skráðu þig hér ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

Allt sem fylgir Kara Pro – með aukalegum þægindum:

Betri yfirsýn

Bókanir og lausir tímar með teymisdagatali Tölfræði og gögn Greiðslur – tegundir og staða

Straumlínulagað vinnuflæði

Umsjónarkerfi fyrir biðlista Samfellt þjónustuframboð og verðskrá Auðvelt að færa skjólstæðinga milli sérfræðinga Auðvelt að bæta við nýjum meðlimum í teymið

Aukin þjónusta og aðstoð

Innleiðing fyrir teymið Veffyrirlestrar og pallborð

Kara Enterprise

**Hafðu samband við sölufulltrúa**

Ótakmarkaður fjöldi sérfræðinga

[ Hafðu samband við sölufulltrúa ](https://share.hsforms.com/1B_oroWRvTVKpJoWymes7ug2uw42)

Stærri stofnanir og stofur geta fengið fullkomlega sérsniðinn aðgang að Köru Connect. Hafðu samband við okkur og segðu okkur frá því sem þú þarft.

## Algengar spurningar

Hvernig virkar 30 daga reynslutímabilið?

Þegar þú skráir þig hjá Köru færðu 30 daga reynslutímabil þar sem þú getur notað alla eiginleika Köru frítt. Þegar 30 daga reynslutímabilinu lýkur verður kortið sem þú notaðir við skráninguna rukkað. Upphæðin tekur mið af fjölda sérfræðinga sem þú hefur skráð.

Hvers vegna þarf ég að skrá greiðslukort til þess að fá reynslutímabilið?

Við höldum að þú eigir eftir að elska að nota Köru og að líkindum muntu vilja halda áfram að nota hana. Svo aðgangurinn þinn lokist ekki sjálfkrafa að reynslutímabilinu loknu biðjum við því um greiðslukortaupplýsingar í upphafi. En engar áhyggjur, við rukkum þig ekkert á meðan reynslutímabilið stendur yfir, og þú getur alltaf sagt áskriftinni upp.

Fyrir hvaða gjöld er rukkað?

Við rukkum fyrir mánaðarlegu áskriftargreiðsluna sem tekur mið af leiðinni sem þú valdir. Auk þess rukkum við €10 á mánuði fyrir hvern sérfræðing sem notar auðkenningu með rafrænum skilríkjum, en það er valfrjálst og á aðeins við um íslenska ríkisborgara.

Hvernig fæ ég greitt fyrir tímana mína?

Ef þú ákveður að rukka fyrir tímana þína í gegnum Kara Connect geturðu notað Kara Pay og fengið greiðslur beint inn á valinn bankareikning. Til þess að gera það þarftu að sýna fram á gild persónuskilríki við virkjun Kara Pay í þágu öryggissjónarmiða.

Er einhver lágmarksbinding áskriftar?

Nei, það er engin lágmarksbinding. Kara Connect rukkar einfaldlega fyrir hvern mánuð sem er í áskrift og þú getur sagt henni upp hvenær sem er. Við erum þó alltaf að vinna að umbótum og nýjungum í þjónustu – svo ekki hika við að fylgjast með því sem er í bígerð eða heyra í okkur hljóðið ef þú ert að hugsa þig um.

Hvaða greiðsluleiðir eru gildar?

Við tökum við öllum viðurkenndum kreditkortum, en aðeins á vefnum.

Geta góðgerðarsamtök eða óhagnaðardrifnar stofnanir fengið afslátt?

Kara Connect sýnir góðgerðarsamtökum og öðrum félagasamtökum sem starfa að bættu samfélagi alltaf virkan stuðning með afsláttum og betri kjörum. Ekki hika við að heyra í okkur. Við reddum því.

Einhverjar frekari spurningar?

Ertu ekki viss um hvaða áskriftarleið hentar þér best? Sendu okkur línu.

## Taktu reksturinn á næsta stig strax í dag

Finndu hvernig Kara Connect straumlínulagar verkefnaflæðið þitt, hjálpar þér að nota tímann þinn betur, og það sem er allra mikilvægast – hvernig Kara gerir þér kleift að vera til staðar fyrir skjólstæðinga þína á þeirra forsendum.

[ Byrjaðu að nota Köru ](https://4800530.hs-sites-eu1.com/is/skráðu-þig-sem-sérfræðing)

![](https://px.ads.linkedin.com/collect/?pid=4922778&fmt=gif) ![](https://px.ads.linkedin.com/collect/?pid=4727826&fmt=gif)